Gellurnar í Þriðja A

3.A bekkur Grunnskólaskor KHÍ

8.13.2007

Takk fyrir okkur!!



Jæja eftir mikið strögl við að komast inn á þessa síðu til að blogga tókst það loksins með hjálp frá Guðnýju. Mig langaði bara til þess að þakka fyrir mig því ég fékk gjafabréf með póstinum um daginn. Þegar betur var að gáð sá ég að þetta var gjöf frá ykkur píunum handa stráksa. Mér langaði þessvegna bara að segja takk fyrir okkur, þetta kemur sér vel :)


Hvað er annars að frétta af ykkur öllum, allir hættir að blogga og engin heldur saumaklúbb þannig að maður veit ekki neitt um neinn lengur. Við verðum að fara að drífa okkur í því að hittast svo að tengslin rofni ekki alveg.


Af mér er allt gott að frétta, er enn í barneignarfríi og nýt lífsins og sé fram á að vera í fríi fram að áramótum en veit ekkert hvað tekur við eftir það......... ætla allavega ekki að fara út í kennslu! Ég setti inn tvær myndir af Matthíasi, önnur er tekin þegar hann var að "máta" dúkkuvagninn hjá vinkonu sinni og hin þegar hann var að fá graut í fyrsta skipti.

6.28.2007

Risessan



Til hamingju allar með útskriftina um daginn allar saman. Það tók ekki langan tíma að verða kennari!!! eða að "læra" það.

Ég átti stelpu 31.maí hún lét bíða eftir sér þar sem áætlaður komudagur var 16.maí. Það var svo huggulegt inni í kúlunni að það þurfti að setja mig að stað.

Hún er engin smá stelpa og var hún 4350gr og 56cm þegar hún kom í heiminn og dafnar mjög vel.

Hér fyrir neðan er hún með honum Mattíasi Guðna sem
hún hitti um daginn.

Verið svo duglegar að blogga hérna og vonandi hittumst við svo í haust.

5.02.2007

Partý partý

Ætli það sé ekki best að byrja óska þeim sem skiluðu lokaritgerðinni sinni í dag til hamingju!!!!. Ef ég væri ekki með þessa stóru kúlu framan væri ég að sötra bjór núna í staðin fyrir kristal+.

Vonandi sjáumst við sem flestar á föstudaginn í kokteilboðinu sem "við" höldum fyrir kennarana sem eru búinir að kvelja okkur síðustu viku. Einhverjar voru að spá hvort við ættum að fara eitthvað saman að borða eftir það.

Hvað segið þið um það.

kv. Bryndís

2.28.2007

Hittingur

Hér fyrir neðan eru skilaboð frá Hörpu, tók þetta úr kommentakerfinu. Það þurfti að búa til nýtt lykilorð og eitthvert vesen til þess að geta bloggað. Ég sendi ykkur lykilorðið í pósti til ykkar, sem fyrst áður ég gleymi því.
Kv. Bryndís

já en eins og ég sagði hér fyrir ofan að þá get ég ekki gert nýtt blogg...annað hvort kann ég ekki á þetta eða það er einhver bilun í gangiHvað segið þið um þriðjudaginn 6. mars? um að gera að hittast, hrista upp í liðinu og plana árshátíðarfjör ef að einhverjar ætla :-)kv Harpa(ef einhver kann að búa nýtt blogg þá má sá hinn sami copya þetta í nýtt ;-))

2.13.2007

GLATAÐ...

hæbbs, þetta er ferlega glatað að vera ekki með ykkur í neinum tímum!! Hvernig var það vorum við ekki að tala um hitting í janúar? eigum við ekki að fara að drífa í því að hittast? borða saman eða jafnvel saumóhitting? ég get alveg haldið saumóhitting og við allar að koma með eitthvað eins og síðast (eða var það ekki þannig annars)

jæja látið í ykkur heyra...ef það eru einhverjar sem enn skoða síðuna:-)

kv Harpa

1.06.2007

Fæddur drengur

ég vil byjra á að óska ykkur gleðilegs nýs ár og þakka ykkur fyrir það gamla:O)
En það er kominn nýr meðlimur í bekkinn okkar. Elín okkar fæddi strák í gærkveldi klukkan 22:21. Hann var 14 merkur en síðast þegar ég frétti þá var ekki búið að mæla lengdina á guttanum.
Til hamingju elskan:O)
Kv. Elva Dröfn

1.02.2007

Lokaspretturinn

Sælar allar og gleðilegt nýtt ár.... og takk fyrir gömlu. Þá erum við nú langt komnar og eigum einungist eftir nokkrar vikur þar til að við verðum ornar útskrifaðar sem kennarar. ´jibbí.... En þangað til eigum við nú eftir að bralla ýmislegt og finnst mér að við ættum að fara að hittast á kaffihúsi eða jafnvel að fara út að borða eða heima hjá einhverjum og panta okkur mat eða einhvað. Endilega commentið á þetta og látið vita hvað þið viljið gera. Mér finndist sniðugt að gera þetta fljótlegar.

Kveðja Guðný